| Hjartaáfallið |
| Mánudagur, 08. Desember 2008 11:57 |
|
Ég get ekki setið í bílnum, ég get ekki hallað sætinu aftur og ég næ varla andanum. Verkirnir eru óbærilegir og ég er hræddur.
Ég skil þetta ekki ég skelf úr kulda og verkirnir hellast yfir mig af enn meiri krafti og það sinnir mér engin. Hann keyrir mig inn á móttöku og gefur skipanir til hægri og vinstri og ég er loksins settur í almennilegt rúm og með bjöllu. Verkirnir eru yfirþyrmandi en einhvernvegin er ég orðin dofinn. Læknirinn kemur aftur og segir mér að ég hafi fengið hjartaáfall og ómskoðun hafi leitt í ljós litla eða mjög skerta hreyfingu á framvegg hjartans. Ég skil ekki alveg hvað hann á við en ég skynja þó að þetta er alvarlegt.
Hann segir mér að ég fái lyf til að reyna opna æðina sem sennilega sé stífluð og svo fari ég væntanlega í hjartaþræðingu um morguninn. Ég kinka kolli skilningsvana og örmagna enda eru liðnar um 8 klukkustundir síðan ég kom á bráðamóttökuna.
Upplifun mín af því að fá hjartaáfall 9 febrúar 2003. Björn |
