| Hjartaáföllum fækkaði við lýsisgjöf |
| Þriðjudagur, 02. September 2008 14:45 |
|
Rannsóknin náði til sjöþúsund hjartasjúklinga sem í fjögur ár fengu eitt lýsishylki á dag. Helmingurinn fékk raunar plathylki. Allir sjúklingarnir fengu þar að auki hefðbundna meðferð og lyf. Niðurstaðan var sú að þeir sem fengu alvöru Omega-3 hylki dóu síður úr hjartaáfalli. Munurinn var níu prósent. Hættan á hjartaáfalli sem ekki leiddi þó til dauða minnkaði um átta prósent. Niðurstaða rannsóknarinnar er birt í nýjasta hefti læknaritsins The Lancet. Danska blaðið Jyllandsposten segir frá þessu og getur þess að aðrar rannsóknir hafi leitt í ljós að lýsi sé einnig gott fyrir heilann.
Þannig hafi lýsisgjöf merkjanlega góð áhrif á börn sem haldin eru ofvirkni og athyglisbresti og eins á alzheimer sjúklinga. Þá hafi námsárangur barna batnað við lýsisgjöf. |
