| Hjartaáföllum fækkar og Skotar almennt sprækari eftir reykingabann |
| Mánudagur, 10. September 2007 21:50 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image http://eyjan.is/files/2007/09/reykingar.jpg
Kannanir sýna að sjúklingum sem fá hjartaáföll hefur fækkað um 17% á fyrsta ári reykingabannsins. Áður en bannið gekk í gildi, í mars síðastliðnum, hafði hjartaáföllum aðeins fækkað um 3% á ári undanfarinn áratug. Þessar niðurstöður, sem hafa verið birtar í læknatímaritum, vöktu mikla athygli á ráðstefnunni í Edinborg. Þeir sem standa að ráðstefnunni sögðu líka að í könnun á landsvísu kæmi fram að áhrif óbeinna reykinga mældust 39% minni hjá 11 ára börnum, svo og fullorðnum sem reykja ekki. Þeir sögðu ekkert liggja fyrir um að reykingar hefðu færst af opinberum stöðum inn á heimilin og stuðningur við reykingabannið væri almennur, ekki síður meðal meðal reykingafólks. Ráðstefnan hefur laðað að gesti úr heilbrigðisgeiranum hvaðanæva úr heiminum Yfirmaður heilbrigðisstofnana í Skotlandi, prófessor Peter Donelly, sagði að rannsóknir sem kynntar hefðu verið á ráðstefnunni sýndu svo ekki yrði um villst hversu jákvæð áhrif bannið hefði nú þegar haft á heilsu almennings. “Þetta sýnir og sannar að nýju lögin hafa bætt heilsu allra í Skotlandi, að reykingamönnum og ekki-reykingamönum, börnum og starfsmönnum veitingastaða meðtöldum,” sagði hann. “Eitt af því mikilvægasta er fækkun hjartaáfalla, en við erum vissir um að reykingabannið á stóran þátt í fækkun þeirra. Ég er sannfærður um að við munum halda áfram að sjá jákvæð áhrif reykingabannsins á komandi árum,” sagði Donelly.
Shona Robison, heibrigðisráðherra, mun eiga lokaorðin á ráðstefnunni á morgun. Hún sagðist yfir sig ánægð með að sérfræðingar í heilbrigðismálum hvaðanæva úr veröldinni væru nú staddir í Edinborg. “Hér fá þeir að heyra frá fyrstu hendi hversu mjög bannið hefur bætt heilsu þjóðarinnar sem verður þeim örugglega hvatning,” sagði hún. |

