| Hjartablogg |
| Föstudagur, 14. September 2007 11:38 |
|
Þessvegna hefur það verið að brjótast í még töluverðan tíma að byrja að blogga og geta þá hugsanlega náð til lesenda sem ekki myndu annars ramba hér inn. Mér finnst ritstjórnargreinin hans Karls Andersen sem birtist í nýjasta hefti Læknablaðsins og ég birti reyndar hér á síðunni líka afar góð og fróðleg yfirlestrar. ÞAð er með ólíkindum að 55% kvenna deyi úr hjarta og æðasjúkdómum og 43% karlmanna. Það er líka merkilegt að það eru meiri líkur á því að deyja úr hjarta og æðasjúkdómum heldur en öllum krabbameinunum samanlagt. Þetta er stórmerkilegt og segir okkur eins og ég nefndi hér að framan að umræðan um hjarta og æðasjúkdóma er ekki í neinu samræmi við umfang vandans. Höfum líka hugfast að varðandi hjarta og æðasjúkdóma getum sjálf gert svo ótrúlega margt til að koma í veg fyrir þá. Hvað um það, ástæða þess að ég ákvað að blogga líka en ekki nota bara hjarta.net er einföld. Ég á það til að hafa skoðanir á hinu og þessu og þá finnst mér ekki endilega við hæfi að ég geri www.hjarta.net að farvegi fyrir það. Hinsvegr fyrir þá sem vilja fylgjast með því sem ég er að hugsa þá er slóðin á hjartabloggið mitt http://bjorno.blog.is/blog/bjorno/ Að lokum við ég minnast á að ég hef fengið gríðarlega mikil viðbrögð við greininni um ris og karlmennsku þar sem að ég fjalla um mína reynslu af ristruflunum, takk fyrir það.
Verið þið svo velkomin á bloggið mitt
Bjössi
|
