facebook

Hjartaígræðslur stöðvaðar tímabundið á Skotlandi
Föstudagur, 21. Desember 2007 19:40

hjartaigraedsla2.jpgHjartaígræðslum hefur verið hætt tímabundið í sjúkrahúsinu Royal Infirmary í Glasgow á Skotlandi á meðan sérfræðingar fara yfir verkferla. Er þetta gert vegna þess að fjórir af 11 sjúklingum, sem fengu nýtt hjarta á sjúkrahúsinu á þessu ári, létust innan 30 daga frá aðgerðinni.

Fram kom í fréttum Sky sjónvarpsstöðvarinnar, að sjúklingar, sem bíða eftir hjartaígræðslu, hafi verið settir á biðlista sjúkrahúss í Newcastle á Englandi.

Sjúkrahúsið í Glasgow er það eina á Skotlandi þar sem hjartaígræðslur fara fram. Slíkar aðgerðir hófust þar árið 1992 en árið 2000 þurfti að gera hlé á þeim um tíma vegna þess að sérhæfða lækna skorti.

www.mbl.is 21.12.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066