facebook

Hjartalíf.is
Miðvikudagur, 11. Apríl 2007 23:16

bjoll.jpgStofnendur www.hjartalif.is voru ég, Björn Ófeigsson, og eiginkona mín Mjöll Jónsdóttir. Vefsíðan hefur það markmið að miðla upplýsingum til almennings, hjartasjúkra og aðstandenda þeirra um hin ýmsu hjartans mál.

Þann 9. febrúar 2003 fékk ég hjartaáfall. Það tók mig þó nokkurn tíma að átta mig á því hvað hafði gerst, ég var ráðvilltur og mig vantaði upplýsingar bæði um sjúkdóminn og líf eftir hjartaáfall. Það efni sem ég fann á netinu fannst mér frekar óaðgengilegt. Hvergi var hægt að nálgast upplýsingar á einni síðu þar sem fólk gat fengið svör við spurningum sínum.

Það var í kjölfar þessarar upplýsingaleitar minnar að hugmyndin að www.hjartalif.is kviknaði og var vefurinn settur í loftið í byrjun mars 2005. Síðan þá hefur vefurinn vaxið og dafnað, ekki síst eftir að hann fékk Íslensku vefverðlaunin árið 2008.

Hluti af því efni sem á vefnum má finna er mín saga; mín veikindi, hvernig ég tekst á daglegt líf sigra og ósigra. Einnig má finna ýmsar upplýsingar um hjartasjúkdóma, áhættuþætti, rannsóknir, endurhæfingu, rétt sjúklinga og fleira. Ekkert hjartatengt efni er vefnum óviðkomandi.

Nauðsynlegt að allir séu upplýstir
En hjartasjúkdómar eru ekki einkamál sjúklingsins. Fjölskylda og vinir þurfa einnig upplýsingar og ráðgjöf um ýmislegt tengt sjúkdómnum. Mjöllin mín hefur fylgt mér í þessu magnaða ferðalagi og án hennar hefði þessi vefur ekki verið framkvæmanlegur. Ferðalag Mjallar hefur verið merkilegt og niðurstaðan sú að efni fyrir aðstandendur hjartasjúklinga er af mjög skornum skammti og að átaks sé þörf í þeim efnum. Mjöll heldur utan um málefni tengd aðstandendum undir liðnum Hjartavinir og vonumst við til að aðstandendur fá þar svör við því sem á hugann leitar. Hægt er að senda Mjöll tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Vefur í sífelldri þróun
Vefurinn er í sífelldri þróun og þannig reynum við að uppfæra og bæta við efni sem oftast. Ef þú, lesandi góður, hefur spurningar, ábendingar eða athugasemdir fram að færa þá hvet ég þig til að senda okkur línu.

Ég er ekki sérfræðingur, læknir né vísindamaður. Ég er venjulegur maður sem fékk hjartaáfall og langar til að hjálpa fólki að nálgast upplýsingar um hjartasjúkdóma og daglegt líf með sjúkdómnum. Það er nefnilega líf eftir hjartaáfall eða greiningu hjartasjúkdóms.

Allt það efni sem aðstandendur www.hjartalif.is skrifa hér á vefinn er sett fram eins og við skiljum það, hvort heldur sem það er byggt á eigin reynslu eða efni sem við höfum lesið. Efni vefsíðunnar er því ekki ætlað til greininga á sjúkdómum heldur aðeins til upplýsinga og fróðleiks.

Mig óraði alls ekki fyrir því í upphafi hversu umfangsmikil vefsíða www.hjartalif.is ætti eftir að verða. Þessi málefni eru mitt hjartans mál og ég vona að lesendur finni hér eitthvað við sitt hæfi og gagns.

Megi þú eiga gott hjartalíf!

f.h. www.hjartalif.is

Björn Ófeigsson
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066