| Hjartamiðstöð Íslands vill bjóða upp á hjartaþræðingar |
| Þriðjudagur, 08. Júlí 2008 10:53 |
|
Aldrei verið gert utan spítala Axel segir að þó svo hjartaþræðingar hafi aldrei verið gerðar á Íslandi utan Landspítalans og forvera hans sé það mjög algengt erlendis að slíkar aðgerðir séu gerðar utan spítala. „Þar er þetta gert í stórum stíl,“ segir hann og bendir á að við stærstan hluta kransæðaþræðinga þurfi ekki að vera fullbúin skurðstofa til staðar. „Heilsuverndarstöðin er mjög nálægt Landspítalanum. Þannig að það er mjög stutt að fara sem er svona starfsemi alltaf í hag,“ bætir hann við. Til umræðu í heilbrigðiskerfinu Axel segir öll áform Hjartamiðstöðvarinnar háð því að góð sátt og samkomulag náist við heilbrigðisyfirvöld. „Við höfum kynnt verkefnið fyrir heilbrigðisyfirvöldum og það er nú farin af stað heilmikil umræða um það,“ segir Axel en Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segist ekki geta tjáð sig um málið þar sem það hafi ekki verið kynnt fyrir honum.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
