facebook

hjarta.net verður hjartalif.is
Sunnudagur, 25. Maí 2008 22:21

hjartalif.jpgÞað er okkur mikil ánægja að kynna fyrir þér okkar hjartans mál, vefsíðuna okkar www.hjarta.net sem nú heitir www.hjartalif.is. Hjartalif.is er upplýsingavefur um allt sem viðkemur hjartanu, fyrir þá sem þjást af hjartasjúkdómum, aðstandendur þeirra (hjartavinir) og alla aðra sem hafa áhuga eða ástæðu til að kynna sér betur málefni hjartans.

Í febrúar síðastliðnum voru fimm ár liðin frá því hugmyndin að hjartavefnum okkar kviknaði og í febrúar síðastliðnum fékk hjarta.net íslensku vefverðlaunin fyrir að vera besti vefur einstaklings árið 2007. í tilefni af þessum áfanga var farið í töluverðar viðbætur á vefnum og kynnum við nú til leiks endurbættan og enn notendavænni hjartavef með nýju nafni, www.hjartalif.is. Ástæða þessarar breytingar er einfaldlega sú að við tókum eftir því að fólk átti erfitt með að muna .net endinguna svo við leituðum og hugsuðum um .is nöfn uns við duttum niður á þetta góða nafn www.hjartalif.is. Við erum mjög ánægð með nafnið og vonum að þú verðir það líka.

Það sem í upphafi var óljós draumur um persónulegan vef um hjartansmál er orðið að viðamiklum upplýsingavef sem fær um 10.000 innlendar heimsóknir á mánuði. Markmið okkar sem stöndum að www.hjartalif.is er að er að vera til staðar fyrir annað fólk í okkar sporum ásamt því að skapa meiri umræðu um hjartasjúkdóma með aukinni umfjöllun.

Staðreyndirnar tala sínu máli:

·  Árlega deyja 1800 Íslendingar þar af 700 manns úr hjarta og æðasjúkdómum eða 40%

·  Árið 2005 dóu 150 konur úr hjartasjúkdómum.

·  Sama ár dóu 56 konur úr lungnakrabbameini en 31 úr brjóstakrabbameini.

·  Það deyja fimmfalt fleiri konur úr kransæðasjúkdómum en brjóstakrabbameini. 
 

·  Á árinu 2005 dóu um 200 karlar úr kransæðasjúkdómum.

·  Sama ár dóu 70 karlar úr lungnakrabbameini og 55 karlar létust úr blöðruhálskirtilskrabbameini.

·  Það deyja fleiri Íslendingar úr hjarta og æðasjúkdómum en öllum krabbameinunum samanlagt. 

Öll þekkjum við einhvern sem hefur glímt við kransæðasjúkdóma með einum eða öðrum hætti og að okkar mati er besta forvörnin upplýst umræða og gott aðgengi að hjartaupplýsingum. Það bjargar mannslífum að þekkja einkenni hjartasjúkdóma ásamt því auðvitað að vera meðvitaður um fjölskyldusögu sína.

Okkar markmið er að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að eiga gott hjartalíf alla æfi. Við biðjum þig því um að skoða síðuna okkar, láttu annað hjartafólk vita af henni og ef þú átt þér hjartasögu, þá höfum við áhuga á reynslu þinni og skoðunum.

 

Með hjartanskveðjum,

Björn Ófeigsson vefstjóri og hjartasjúklingur

Mjöll Jónsdóttir ráðgjafi og hjartavinur

Stofnendur hjartalif.is

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066