| Hjartaþræðing |
| Þriðjudagur, 16. Desember 2008 15:51 |
|
Ég var á leiðinni í hjartaþræðingu og var frekar lítill í mér og óöruggur. Ég vissi svo lítið að ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað hjartaþræðing var. Ég var ringlaður og á köflum gráti næst, mér leið ekki vel. Ég fann nokkuð stöðugt fyrir verknum í brjóstinu þó vera megi að hann hafi yfirgefið mig stund og stund. Þræðingunni var lokið og ég var með þrýsting í náranum og sandpoka. Ég man ekki mikið en mér leið illa , var með verki og var gefið töluvert af lyfjum. Fljótlega eftir að ég kom upp á deild komu móðir mín og systir en ég var ekki viðræðuhæfur, var undir áhrifum lyfja, ringlaður og ruglaði á köflum. Ég vissi þó að almennt þegar fólk fer í hjartaþræðingu þá er þetta ekki alveg jafn mikil dramatík og mikið mál. Þetta var þó öðruvísi í mínu tilfelli þar sem aðdragandinn var töluvert annar en almennt getur talist, jafnvel eðlilegt. Þegar leið á daginn fór ég að fá fregnir af því hvernig hjartaþræðingin hefði gengið og í ljós hafði komið að æðin á framvegg hjartans hafði verið 90% stífluð þannig að segaleysandi meðferðin frá deginum áður hafði ekki skilað miklum árangri. Æðin hafi verið blásin og þar sett stoðnet.
Sjúkraþjálfari kom til mín og sagði mér að ég væri hættur að reykja og ég sagði bara já og hef ekki reykt síðan. Næstu dagar voru erfiðir og ég var lengi að jafna mig eftir ósköpin. Sem dæmi má nefna að ég steig varla fram úr rúmi fyrr en á þriðja degi eftir þræðingu svo þreklítill var ég. Björn |
