
| Hjartaþræðing - Björn Ófeigsson |
| Þriðjudagur, 16. Desember 2008 00:00 |
|
Ég veit ekki alveg hvernig ég svaf. Mér voru gefin lyf og ég átti stundum erfitt með að átta mig á því hvar ég var staddur þegar ég rumskaði. Um morguninn var ég ringlaður og átti í erfiðleikum með að setja saman atburðarrás síðasta sólahrings. Ég var örmagna eftir hjartáfallið frá því deginum áður. Ég var samt engu nær um hvað þetta allt saman þýddi eða hvaða þýðingu þetta myndi hafa í framtíðinni.
Ég var með nálar á báðum handleggjum, fékk vökva og eitthvað fleira í æð. Það var mikil umferð af fólki á sjúkrabeð mitt, sumir að taka blóð, hjartalínurit eða spyrja mig spurninga.
Ég var á leiðinni í hjartaþræðingu og var frekar lítill í mér og óöruggur. Ég vissi svo lítið að ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað hjartaþræðing var. Ég var ringlaður og á köflum gráti næst, mér leið ekki vel. Ég fann nokkuð stöðugt fyrir verknum í brjóstinu þó vera megi að hann hafi yfirgefið mig stund og stund. Þræðingunni var lokið og ég var með þrýsting í náranum og sandpoka. Ég man ekki mikið en mér leið illa , var með verki og var gefið töluvert af lyfjum. Fljótlega eftir að ég kom upp á deild komu móðir mín og systir en ég var ekki viðræðuhæfur, var undir áhrifum lyfja, ringlaður og ruglaði á köflum. Ég vissi þó að almennt þegar fólk fer í hjartaþræðingu þá er þetta ekki alveg jafn mikil dramatík og mikið mál. Þetta var þó öðruvísi í mínu tilfelli þar sem aðdragandinn var töluvert annar en almennt getur talist, jafnvel eðlilegt. Þegar leið á daginn fór ég að fá fregnir af því hvernig hjartaþræðingin hefði gengið og í ljós hafði komið að æðin á framvegg hjartans hafði verið 90% stífluð þannig að segaleysandi meðferðin frá deginum áður hafði ekki skilað miklum árangri. Æðin hafi verið blásin og þar sett stoðnet.
Sjúkraþjálfari kom til mín og sagði mér að ég væri hættur að reykja og ég sagði bara já og hef ekki reykt síðan. Næstu dagar voru erfiðir og ég var lengi að jafna mig eftir ósköpin. Sem dæmi má nefna að ég steig varla fram úr rúmi fyrr en á þriðja degi eftir þræðingu svo þreklítill var ég. Björn |
