| Hjartaþræðingar söluvara ? |
| Fimmtudagur, 11. Desember 2008 11:56 |
|
Ekki veit ég hvort elsta tækið er notað við raflífeðlisfræðilegar rannsóknir en hitt veit ég þó að elsta tækið á LSH tilheyrir gamalli kynslóð tækja og er nánast orðið úrelt og lítið hægt á það að stóla til lengri tíma litið. Í málefnum hjartasjúklinga er því víða pottur brotinn.
Og Þórarinn heldur áfram seinna í greininni. „Sjúklingar liggja yfirleitt á göngum hjartadeildar vegna plássleysis og þar er áfátt bæði öryggi þeirra og einkalífi. Sjúklingar sem eru rúmliggjandi á ganginum, til dæmis eftir þræðingu, verða að pissa í bekken eða flösku, liggjandi í rúminu á ganginum þar sem umferð gesta og sjúklinga er stöðug, í besta falli bak við gegnsætt skilrúm. Þegar yfirlagnir eru miklar á hjartadeildinni deila 14 sjúklingar með sér einu klósetti. Smitgát verður erfið við slíkar aðstæður. Aðstöðuleysi háir göngudeildum hjartadeildar. Bráðamóttaka hjartasjúkra í kjallara Landspítala er sprungin.“ Svo mörg voru þau orð.
Björn |
