| Hjartveik börn fá ekki milljónir frá Landsbankanum |
| Þriðjudagur, 21. Desember 2010 00:00 |
|
Sjóðurinn tapaði 20 milljónum króna þegar bankinn hrundi að sögn forsvarmanna Neistans. Að auki kom í ljós að samningurinn frá 2005 var brotinn því lítið sem ekkert af fjármunum sjóðsins voru í öruggum bréfum. Forsvarsmenn sjóðsins kærðu bankanna vegna þess og kröfðu hann um rúma 21 milljón króna. Verjendur Landsbankans sögðu að í samningnum sem Neisti gerði við bankann hafi hvergi komið fram að ávaxta þyrfti nær eingöngu í ríkisskuldabréfum heldur hafi markmiðið verið að ná sem bestri ávöxtun. Lögmaður styrktarsjóðsins, Jóhann Haukur Hafstein, sagði í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins íhuga að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar. |
