facebook

Hjartveik börn svikin
Þriðjudagur, 09. Desember 2008 09:50

anney_birta_jhannesdttir_gurn_bergmann_franzdttir.jpgNeistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, tapaði 28 milljónum á bankahruninu en styrktarsjóður félagsins var ávaxtaður í peningamarkaðsbréfum Landsbankans. Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnar sjóðsins, segir tapið ófyrirgefanlegt.

Meðal þeirra sem hafa notið góðs af sjóðnum er hin sex ára gamla Anney Birta Jóhannesdóttir sem farið hefur í sex hjartaaðgerðir, þá fyrstu aðeins tíu dögum eftir að hún fæddist. Guðrún Bergmann Franzdóttir er móðir Anneyjar og jafnframt formaður stjórnar Neistans. Eftir fyrstu aðgerðina sem Anney fór í leituðu foreldrar hennar til sjóðsins. „Þessi sjóður er bráðnauðsynlegur,“ segir hún.

Guðrún Pétursdóttir er formaður stjórnar Styrktarsjóðs hjartveikra barna. Hún er mjög ósátt við hve sjóðirnir hafa rýrnað í bankahruninu því fullyrt var við stjórnarmenn að sjóðirnir væru öruggir. „Mér finnst þetta ófyrirgefanlegt. Öll vinna í tengslum við styrktarsjóðinn er unnin í sjálfboðavinnu. Neistinn hefur safnað hverri krónu frá velunnurum þeirra sem eiga um sárt að binda, og það tók tólf ár að koma sjóðnum í níutíu milljónir. Það er sárt að horfa á sjóðinn fara svona, því það bitnar beint á skjólstæðingum hans, hjartveikum börnum,“ segir Guðrún Pétursdóttir.

www.dv.is 09.12.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066