| Hjartveikur skaðast vegna Landsbankans |
| Miðvikudagur, 02. September 2009 08:27 |
|
„Þetta er bara hundfúlt. Að menn skuli leyfa sér að spila með þessa peninga og tapa svona rosalegum upphæðum er alveg hreint ótrúlegt. Þetta er styrktarsjóður fyrir fjölskyldur langveikra barna en ekki spilapeningar,“ segir Ágúst Hilmarsson, faðir átta ára drengs með hjartasjúkdóm.
Styrktarsjóður hjartveikra barna fól Landsbankanum fjárvörslu sjóðsins og var þar höfuðáhersla lögð á örugga ávöxtun. Eftir þessu var ekki farið og við bankahrunið síðasta haust tapaði sjóðurinn 21 milljón. Skaðabótamál styrktarsjóðsins gegn Landsbankanum var þingfest í gær. |
