| Hjólreiðar sagðar valda hjartaáfalli |
| Föstudagur, 25. Febrúar 2011 10:11 |
|
Prófessor David Spiegelhalter, áhættusérfræðingur frá Cambridge háskólanum segir að erfitt sé að meta þá áhættuþætti sem teknir voru fyrir í rannsókninni. „Það geta verið svo misjafnar aðstæður. Sumir hjóla til vinnu í þungri umferð þar sem mengun er mikil á meðan aðrir hjóla þar sem loft er hreinna. Það er erfitt að fullyrða svona. Það eru margir aðrir þættir sem geta orsakað hjartaáfall svo sem streita, líkamleg áreynsla, reiði eða fjölskyldusaga. Þetta er allt mjög flókin blanda," sagði Spiegelhalter og hvatti fólk um leið til þess að halda áfram að stunda sína hreyfingu og ekki hætta hjóla. Ávinningurinn að æfa utandyra er oft mun betri fyrir heilsuna heldur en að æfa innandyra í líkamsræktarstöð. www.visir.is 25.02.2011 |
