| Hjólreiðar valda alls ekki hjartaáföllum |
| Þriðjudagur, 01. Mars 2011 19:34 |
|
Tim Nawrot, einn af höfundum skýrslunnar segir alrangt að leggja svo út af rannsókninni. „Ég er ekki sammála því að hjólreiðar séu óheilsusamlegar. Hreyfing er mjög góð leið til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma af ýmsu tagi." Nawrot útskýrir að rannsóknin hafi verið gerð til þess að finna helstu þætti sem orsaki að lokum hjartaáföll hjá fólki sem er þegar langt leitt af sjúkdómum sem offita, drykkja og reykingar valda, svo dæmi séu tekin. Sérfræðingur hjá bresku hjartasamtökunum bætir um betur í Guardian greininni og segir: „Loftmengun og útblástur bifreiða geta gert illt verra hjá þeim sem þjást af hjartasjúkdómum. En ef hjartað er heilbrigt þá er mun meira að græða á því að fara út að hjóla en að sitja bara heima með gluggana lokaða." www.visir.is 01.03.2011 |
