| Hjónabandserfiðleikar kunna að vera hættulegir hjartanu |
| Mánudagur, 08. Október 2007 22:44 |
|
Greint er frá rannsókninni í Archives of Internal Medicine í dag, en þátttakendur í henni voru rúmlega níu þúsund opinberir starfsmenn í Bretlandi, flestir í hjónabandi. Þeim sem áttu í mestum erfiðleikum í samskiptum við maka, nána ættingja eða vini reyndist 34% hættara við hjartaáföllum eða öðrum hjartasjúkdómum en þeim sem ekki áttu í erfiðleikum á þessu sviði. Fylgst var með þátttakendum í 12 ára. En í rannsókn sem greint var frá í sumar og beindist einnig að áhrifum persónulegra sambanda á hjartað kom ekki ljós nein fylgni. Sálfræðiprófessor við Háskólann í Pennsylvaníu, sem einnig hefur rannsakað áhrif félagslegra samskipta á heilsufar, segir að niðurstöðurnar sem birtar voru í dag „virðist við fyrstu sýn ekki koma á óvart,“ en tengslin sem hún sýni fram á séu mjög veik.
Ekki blasi við að rétt sé að ráðleggja fólki sem búi í slæmum hjónaböndum að sækja um skilnað til að draga úr hættu á hjartasjúkdómum, vegna þess að aðrar rannsóknir hafi sýnt að það sé líka slæmt fyrir hjartað að vera ógiftur. |
