Hjónum með þriggja mánaða gamalt barn, sem var nýkomið úr hjartaaðgerð, var vísað úr þotu Icelandair á flugvellinum í Boston vegna deilu um sætaskipan. Ég ætla að stefna flugstjóranum, segir faðirinn.
Dómsmál "Ég ætla að stefna flugstjóranum og Icelandair," segir Zoran Kokotovic, sem rekinn var frá borði ásamt eiginkonu sinni og börnum úr áætlunarvél Icelandair frá Boston til Keflavíkur á sunnudag.
Hjónin höfðu farið til Boston með eins og hálfs árs gamla dóttur sína og þriggja mánaða gamlan son sinn sem þurfti þangað til að gangast undir hjartaaðgerð. Tryggingastofnun hafði keypt miða á Saga Class fyrir fjölskylduna á leiðinni út en Zoran segir hjónin hafa uppgötvað þegar þau komu út í vél á heimleiðinni frá Boston að farmiðar þeirra voru á almennu farrými.
"Ég taldi að það færi ekki nógu vel um son okkar í almenna farrýminu þar sem við þyrftum þá að taka hann úr rúminu og vildum fá okkur flutt á Saga Class. Þótt það væri bara ein stúlka sem sat þar var okkur sagt að það væri ekki hægt. Miðarnir okkar voru þannig að þeim átti að vera hægt að breyta og ég bauðst til að greiða mismuninn á staðnum en okkur var sagt að það væri útilokað," segir Zoran, sem búið hefur á Íslandi í fimmtán ár og er íslenskur ríkisborgari.
