facebook

Hljómborðsleikari Lynyrd Skynyrd látinn
Fimmtudagur, 29. Janúar 2009 14:01

lynyrd_skynyrd.jpgBilly Powell, fyrrum rótari og hljómborðsleikari bandarísku rokksveitarinnar Lynyrd Skynyrd, lést í gærmorgun á heimili sínum á Flórída. Talið er að banamein hans hafi verið hjartaáfall. Powell var 56 ára. 

Powell hringdi í lögregluna í gærmorgun og sagðist eiga erfitt með að anda og sér liði illa. Þegar lögreglan kom á staðinn var Powell látinn.  

Lynyrd Skynyrd var ein helsta þungarokksveitin í Bandaríkjunum á fyrri hluta áttunda áratugar síðustu aldar en frægasta lag sveitarinnar er Sweet Home Alabama. Árið 1977 fórst flugvél, sem hljómsveitin notaði á hljómleikaferðalagi og með henni þrír úr hljómsveitinni, þar á meðal aðalsöngvarinn Ronnie Van Zant. Powell slasaðist alvarlega.

Powell var upphaflega rótari hljómsveitarinnar en var ráðinn hljómborðsleikari árið 1972. Eftir flugslysið stofnaði Powell og aðrir, sem lifðu af, hljómsveitina Rossington-Collins Band. Síðar tók Powell þátt í endurreisn Lynyrd Skynyrd ásamt Johnny Van Zant, bróður Ronnies.

www.mbl.is 29.01.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066