| Hnetur allra meina bót |
| Þriðjudagur, 11. Maí 2010 09:05 |
|
Rannsóknin náði til 583 þátttakenda á aldrinum 19-86 ára í sjö löndum. Þátttakendur voru, áður en rannsóknin hófst, ýmist með kólesteról sem mældist í meðallagi eða yfir meðallagi. Enginn þátttakendanna tók lyf til þess að hafa áhrif á kólesteról sitt til lækkunar. Þannig kom í ljós að þeir sem mældust með hátt kólesterólmagn gátu lækkað það meira með hnetuneyslunni en þeir sem mældust með lágt magn. Sem sama hætti kom í ljós að áhrif hnetuneyslunnar var einnig meiri hjá einstaklingum í eða undir kjörþyngd. Að mati rannsakenda þarf að rannsaka betur hvers vegna hnetuneysla hefur miklu mun minni jákvæð áhrif hjá of þungum einstaklingum. |
