| Hollt að vera (hæfilega) feitur |
| Föstudagur, 09. Nóvember 2007 11:23 |
|
Multithumb found errors on this page: There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/feitur.jpg
Sérfræðingarnir segja vissulega rétt að fólki í góðum holdum sé hættara við sykursýki og nýrnasjúkdómum en holdgrönnu fólki en þetta eigi ekki við um mjög marga aðra sjúkdóma, þar á meðal krabbamein og hjartasjúkdóma. Þvert á móti. Þeir sem séu 5-15 kílóum yfir kjörþyngd séu í minni lífshættu af ýmsum sjúkdómum og kvillum en þeir sem séu í kjörþyngd, að ekki sé minnst á þá sem séu of grannir eða akfeitir. Þannig benda sérfræðingarnir á að hæfilega mörg aukakíló hafi lengt líf hundrað þúsund Bandaríkjamanna árið 2004, en þetta fólk hefði að líkindum dáið úr ýmsum meinum það ár hefði það verið í kjörþyngd. Þeir sem hafi svonefnt eðlilegt holdarfar séu í 40% meiri lífshættu af völdum margra sjúkdóma og kvilla en þeir sem séu í góðum aukaholdum.
Ekki eru allir á einu máli um ágæti þessarar rannsóknar. Sumir benda á að sérfræðingarnir einblíni á lífslíkur en fjalli ekkert um lífsgæði, ekki komi fram hvaða áhrif aukafita hafi á heilbrigði og sjúkdóma, aðeins líf og dauða. |

Ný rannsókn bendir til þess að það sé hollt að vera dálítið feitur, nokkur aukakíló auki lífslíkur manna. Sérfræðingar Heilbrigðismála-og sjúkdómavarnarmiðstöðvar Bandaríkjanna komust að þessu eftir áralanga rannsókn, en niðurstaðan er birt í nýju tölublaði læknatímaritsins Journal of the American Medical Association.