facebook

Hugað líf eftir hnífstungu í hjartastað
Föstudagur, 06. Apríl 2007 00:00
logreglubill.jpgKARLMAÐUR á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í fimm vikna gæsluvarðhald eftir lífshættulega hnífstunguárás á þriðjudagskvöld. Hann hefur játað að hafa stungið tæplega fimmtugan karlmann tvívegis og fór hnífurinn t.a.m. í gegnum hjarta fórnarlambsins. Sekúnduspursmál var hvort fórnarlambið lifði árásina af en hann liggur á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt.

Aðdragandi árásarinnar er ekki að fullu ljós en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sátu fimm karlmenn á fimmtugs- og sextugsaldri að drykkju heima hjá einum þeirra. Ekki liggur fyrir hvað gerðist en af einhverjum ástæðum brá einn mannanna sér inn í eldhús íbúðarinnar, sótti hníf og réðst að félaga sínum og stakk hann tvívegis.

Mennirnir hringdu sjálfir á lögreglu sem kom á staðinn ásamt sjúkraliði. Fórnarlambið var flutt í skyndi á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss en hinir gistu fangageymslur. Einn þeirra játaði og hefur eins og áður segir verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hinum mönnunum var sleppt í gær.

Með djúp sár á brjóstkassa
Samkvæmt upplýsingum frá LSH var það fyrir snarræði og sérstaklega góð viðbrögð að fórnarlambið lifði árásina af. Ágúst Hilmarsson deildarlæknir var einn af fyrstu mönnum á vettvang og mat aðstæður svo að engan tíma mætti missa. Maðurinn var með litla meðvitund og djúp sár á brjóstkassa. Kallaði hann því eftir miklum viðbúnaði á bráðamótttökunni, og hjartaskurðlækni.

Hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson var kallaður út en hann var á svonefndri bundinni vakt á Landspítalanum við Hringbraut. Þegar hann fékk tilkynninguna voru fimm mínútur í að komið yrði með fórnarlambið niður í Fossvog.

Tómas var fluttur niður eftir í lögreglubifreið og var þangað kominn tveimur mínútum á eftir fórnarlambinu. Nánast á sama tíma stöðvaðist hjarta mannsins og grípa þurfti til aðgerða samstundis.

Afar sjaldgæft er að aðgerðir séu gerðar í bráðamóttökunni en eftir að Tómas hafði beitt hjartahnoði og hjarta mannsins sló að nýju var ekki annað í stöðunni. Aðgerðin gekk vel.

Liggur alvarlega slasaður
Ófeigur Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa- og bráðasviði LSH, segir að viðbrögðin hafi verið til fyrirmyndar og á spítalanum séu menn ánægðir með hvernig til tókst. Margir starfsmenn áttu þátt í björgun mannsins og hvert skref heppnaðist vel. Hann segir að þarna hafi afar litlu mátt muna en bendir jafnframt á að maðurinn sé enn á gjörgæsludeild, og þó svo að ástand hans sé stöðugt sé hann alvarlega slasaður.

Eftir Andra Karl
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Morgunblaðið 05.04.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066