| Hugleiðingar um hjartaþræðingartæki |
| Miðvikudagur, 23. Júlí 2008 19:37 |
|
Í febrúar síðastliðnum birtist afar áhugaverð og fróðleg grein í læknablaðinu eftir Þórarinn Guðnason hjartasérfræðing, þar segir meðal annars. „Forvörnum og meðferð við hjarta- og æðasjúkdómum er ekki forgangsraðað í heilbrigðis-kerfinu í dag, þótt þessir sjúkdómar felli 700 Íslendinga árlega. Til að nefna nokkrar brotalamir í "heilbrigðiskerfi hjartasjúklinga", má rifja upp að Landspítalinn og hjartadeild hans eru fjársvelt og til dæmis háð gjafafé til að endurnýja tækjakost sinn. Hjartaþræðingar eru gerðar með öldruðum tækjabúnaði sem nýta myndgreiningartækni síðustu aldar. Myndgæðin eru eftir því.“ Það er óskandi að þær hugmyndir sem forsvarsmenn Hjartamiðstöðvar Íslands hafa nái fram að ganga. Hugmyndir þeirra koma hjartasjúkum og aðstandendum þeirra til góða og er spor í þá átt að gera „heilbrigðiskerfi hjartasjúkra“ notendavænna þannig að kerfið verði sniðið að sjúklingum en ekki þröngum stakk ríkisvaldsins og fjársvelts háskólasjúkrahúss. Reykjavik 23.07.2008 Björn |

Það eru afar gleðileg tíðindi að búið sé að skrifa undir samninga um kaup á nýju hjartaþræðingartæki á LSH. Á sama tíma hlýtur það einnig að vera umhugsunarefni að það sé fyrir tilverknað einstaklinga og félagasamtaka úti í bæ að mögulega sjáist litlir sem engir biðlistar í hjartaþræðingu í nánustu framtíð.