facebook

Hugsanlegt að aðstoðarlandlæknir hætti líka störfum
Þriðjudagur, 09. September 2008 22:06

matthias_halldorsson1.jpg„Ég geri ekki ráð fyrir því," segir Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir þegar Vísir spyr hann hvort hann hyggist sækja um stöðu landlæknis.

Eins og greint var frá í dag mun Sigurður Guðmundsson landlæknir taka við nýrri stöðu forseta heilbrigðisvísindasviðs. Hann hyggst því láta af starfi landlæknis fyrir 1. nóvember.

Matthías segir það alveg óljóst hvort hann starfi áfram sem aðstoðarlandlæknir. „Það getur allt gerst," segir hann. Matthías vill þó ekki segja til um hvort eitthvað sé á prjónunum hjá honum.

www.visir.is 09.09.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066