| Hvað á barnið að heita? |
| Miðvikudagur, 14. Apríl 2010 21:56 |
|
Ég hugsaði með mér að Landspítalamenn ættu að njóta vafans og ef kynning á þessari breytingu færi vel og rækilega fram gæti þetta svosem verið hið besta mál. Greinin var ágæt og lögð á hersla á að hjartamiðstöð LSH væri mikið framfaraspor og farið fögrum orðum um það allt saman og ekkert nema gott um það að segja. Ég hef að vísu þann varan á að þeir sem eru svo óheppnir að fá hjartaáfall um helgi gætu lent á vergangi þar sem hjartamiðstöðin er lokuð um helgar og bráðaþjónusta í Fossvogi. Í Fossvogi er ekkert hjartaþræðingartæki þannig að ljóst er að ferðast þarf með bráðveika sjúklinga á milli staða. Hvernig dettur stjórnendum LSH það í hug að kynna opnun eða breytingu á jafnmikilvægri bráðamóttöku eins og hjartamóttöku með því að rugla fram og til baka með nafnið á henni. Alla vega virðast stjórnendur móttökunnar ekki vera með það alveg á hreinu frá degi til dags eins og sjá má í þessari grein og þessum pistli. Þið verðið að fyrirgefa en mér finnst þetta vægast sagt ruglingslegt, kynningin léleg og maður spyr sig hver stjórni þessari kynningu eiginlega. Nema þetta séu mistök. Ekki að það skipti svosem máli hvað barnið heiti svo framarlega sem maður veit hvar það er að finna. Lesendum til upplýsinga skal þess getið að hjartamiðstöð Landspítala sem heitir víst hjartagátt Landspítala er við Hringbraut og er opinn frá 8 á mánudagsmorgnum til 20 á föstudagskvöldum. Á öðrum tímum er móttaka í Fossvogi. Árósum 14.04.2010 Björn Ófeigsson |
