| Hydroxycut keyrir kerfið upp |
| Föstudagur, 16. Janúar 2009 09:06 |
|
Hydroxycut er eitt vinsælasta fitubrennsluefni í heiminum og sala þess hér á landi hefur verið stigvaxandi með hverju árinu. Á vefsvæði umboðsaðila efnisins segir að Hydroxycut auki hitastig líkamans og örvi þannig grunnbrennslu hans. Viðkomandi brenni þannig fitu allan daginn en ekki aðeins meðan á æfingum stendur. „Við höfum fengið sjúklinga sem sagst hafa notað efnið. Við höfum því velt fyrir okkur hvort það skipti máli í sambandi við þeirra einkenni,“ segir Gestur Þorgeirsson, yfirlæknir á hjartalækningadeild LSH. Hann tekur fram að fjölgun tilvika geti einnig verið tilviljun. „En okkur finnst ástæða til að halda utan um þetta og höfum hugsað okkur að skoða þetta frekar.“
Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir, matvæla- og næringarfræðingur, segir efni í Hydroxycut sem hafi áhrif á hjartað. „Það sem þessi efni gera er að auka brennslu. En það er ekki hægt að brenna hraðar nema keyra kerfið upp. Viðkomandi eykur hjartslátt til að auka brennslu.“ Hún segir efnið beinlínis hættulegt.
Svavar segist ekki hafa heyrt kvartanir vegna efnisins „nema hjá fáeinum sem ekki drekka kaffi og þeim fannst þeir verða of örir. En það er eðlilegt því ef þú drekkur ekki kaffi ertu dálítið viðkvæmur fyrir koffíni.“
» Hydroxycut er eitt vinsælasta fitubrennsluefni í heiminum í dag. Að sögn umboðsaðila er það með yfirburða markaðsstöðu, einnig hér á landi.
» Til skamms tíma innihélt Hydroxycut efedrín en því var hætt eftir að lagt var bann við efedríni í fæðubótarefni í Bandaríkjunum. » Á vefsvæði umboðsaðila segir að Hydroxycut dragi út matarlyst ásamt því að koma í veg fyrir að líkaminn nái að breyta kolvetnum í fitu. Eftir Andra Karl
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
