| Inflúensan veturinn 2008–2009 |
| Þriðjudagur, 09. September 2008 09:57 |
|
Frá þessu segir nánar í dreifibréfi frá sóttvarnalækni nr. 9/2008 sem sent var til heilsugæslustöðva, heimilislækna í Reykjavík, læknastofa, stofnana fyrir aldraða og fleiri aðila 25. ágúst síðastliðinn. Sóttvarnalæknir mælist til þess að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
Í ágústlok greindist eitt tilfelli inflúensu af B stofni hér á landi, eins og greint er frá í nýútkomnum Farsóttafréttum. Að svo stöddu er ekki hægt að fullyrða að þetta þýði að inflúensan sé snemma á ferðinni í ár. Venjulega líða nokkrar vikur frá því að inflúensa greinist fyrst þar til faraldur brýst út. En allur er varinn góður og því hvetur sóttvarnalæknir til þess að hefja bólusetningar um leið og bóluefni hefur borist til landsins. Sóttvarnalæknir www.landlaeknir.is |
