| Innkölluð lyf Actavis ekki seld hér |
| Fimmtudagur, 07. Ágúst 2008 20:47 |
|
Rannveig segir enga ástæðu til að skoða framleiðslu Actavis hér á landi sérstaklega í kjölfar þessara frétta. Í fréttum Sjónvarpsins í gær kvöld var sagt frá því búið væri að höfða sex hópmálssóknir gegn Actavis í Bandaríkjunum vegna hjartalyfs sem fyrirtækið tók af markaði þar í vor. Fram kom að of mikið hefði verið að digoxíni í lyfinu. Guðmundur Þorgeirsson hjartalæknir á Landspítala, segir lyfið vandmeðfarið. Sé of mikið gefið af því geti það valdið lífshættulegum takttruflunum.
|
