| Innlagnargjöld afnumin |
| Mánudagur, 02. Febrúar 2009 20:04 |
|
Samkvæmt reglugerðinni, sem tók gildi um áramótin, var tekið upp 6000 króna gjald vegna innlagnar á sjúkrahús, þó ekki vegna innlagnar á fæðingardeild. Gjaldið fyrir elli- og örorkulífeyrisþega var þrjú þúsund krónur en börn yngri en 18 ára greiða ekkert. „Þetta er í samræmi við þá gagnrýni sem við höfum haldið uppi í vetur, nefnilega að þarna sé um að ræða gjöld sem séu með öllu óviðunandi,“ segir Ögmundur.
Hann kveðst jafnframt vera að skoða nýboðaðar skipulagsbreytingar í heilbrigðiskerfinu. Þá ætlar Ögmundur að hitta bæjarstjórann í Hafnarfirði í vikunni vegna boðaðra breytinga á St. Jósefsspítala og einnig þá sem tengjast starfseminni þar. |
