facebook

Innri kviðfita hættulegri en ytri
Mánudagur, 16. Janúar 2012 00:00
kvifitaÁgústa Johnson spáir í bumbu og kviðspik í nýjasta pistli sínum. Hún bendir á að kviðspik auki líkur á alvarlegum sjúkdómum. 
„Ástarhöldin geta í raun verið hættuleg heilsunni. Algengt er að þeir sem safna mikilli fitu um sig miðja, bæði konur og karlar, safni einnig mikilli innri kviðfitu. Hún er talin mun hættulegri en fitan sem sest undir húðina. Innri kviðfita er sú tegund fitu sem safnast fyrir innan um líffærin og eykur líkurnar á alvarlegum sjúkdómum, t.d. of háum blóðþrýstingi, sykursýki og hjartasjúkdómum, en á Íslandi deyr ein kona og einn karlmaður að meðaltali á dag af völdum hjartasjúkdóma. Kyrrsetufólk og þeir sem reykja eru mun líklegri til að safna á sig innri kviðfitu en þeir sem hreyfa sig reglulega og eru reyklausir. Streita er einnig talin vera áhættuþáttur í aukinni innri kviðfitu,“ segir Ágústa í nýjasta pistil sínum.

„Þó að þú passir enn í sömu gallabuxurnar og þegar þú varst 18 er alls ekki víst að þú sért með fitusnauðan innri kvið. Rannsóknir sýna að fólk sem er grannvaxið en stundar ekki þjálfun er gjarnan með talsverða innri fitu en telur sér oft trú um að sú sé ekki raunin, það sé í fínu líkamlegu formi. Það er nefnilega ekki endilega samasemmerki á milli þess að vera grannur og að vera með heilbrigðisvottorðið í toppstandi.“

HÉR er hægt að lesa pistilinn í heild.

www.mbl.is 16.01.2012

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066