facebook

Isaac Hayes lést úr hjartaáfalli
Miðvikudagur, 13. Ágúst 2008 15:08

isaac_hayes.jpgBanamein sálarkóngsins Isaac Hayes, sem lést á sunnudag, var hjartaáfall, að sögn lögreglu í Memphis. Hayes var ekki krufinn, en læknir hans skráði þetta á dánarvottorð hans. Læknirinn hafði áður meðhöndlað Hayes, sem fékk hjartaáfall fyrir tveimur árum, vegna of hás blóðþrýstings.

BBC hefur það eftir talsmanni lögreglu að engir áverkar hefðu verið á líkinu sem bentu til að banameinið hefði verið annað.

Hayes fannst á heimili sínu liggjandi við hlið hlaupabrettis, sem enn var í gangi. Hann var úrskurðaðir látinn þegar komið var á sjúkrahús. Minningarathöfn verður haldin fyrir söngvarann í Tenessee á mánudaginn kemur.

www.visir.is 13.08.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066