| Íslensku vefverðlaunin 2008 - úrslit |
| Sunnudagur, 01. Febrúar 2009 13:52 |
|
Úrslitin urðu þau að Siminn.is var valinn besti íslenski vefurinn 2008 ásamt því að fá verðlaun fyrir besta útlit og viðmót. Aðrir vefir til að vinna verðlaun voru: Icelandair.is fyrir að vera besti sölu- og þjónustuvefurinn; Póstur.is var valinn besti fyrirtækjavefurinn; kvikmyndir.is fékk verðlaun sem besti afþreyingarvefurinn; akranes.is var valinn besti vefurinn í almannaþjónustu; 24x24.is var valinn besti einstaklingsvefurinn og að lokum var isafoldtravel.is valinn besti vefurinn í flokknum bjartasta vonin.
SVEF vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem sendu inn tilnefningar vegna vefverðlaunanna 2008. Dómnefndin átti úr vöndu að velja þar sem mjög mótt var á munum í sumum flokkum. Stjórn SVEF kann dómnefndinni bestu þakkir fyrir vönduð og vel unnin störf. |
