| Íþróttamenn og hjartað |
| Mánudagur, 26. Janúar 2009 20:16 |
|
Skyndidauði meðal ungra í þróttamanna er mun algengari meðal karla en kvenna. Í Evrópu hafa flest tilvikin verið í knattspyrnu en í Bandaríkjunum í körfubolta og bandaríska fótboltanum. Fréttir af slíkum atburðum hafa oft mikil áhrif á samfélagið enda gjarnan um að ræða þekkta einstaklinga sem vakið hafa aðdáun fyrir afrek sín og líkamlegt atgervi. |
