facebook

Jean Reno fékk EKKI hjartaáfall
Miðvikudagur, 10. September 2008 22:09

jean_reno1.jpgÞessi frétt fór algjörlega framhjá mér. Ég fór að googla kappann í dag og komst þá að því að hann hafði bara alls ekki fengið hjartaáfall sem betur fer.

Rakst semsagt á þessa frétt af vísi.is síðan 22. ágúst.

Franski leikarinn Jean Reno segist ekki hafa fengið hjartaáfall í vikunni líkt og erlendir fjölmiðlar hafa greint frá.

Reno sem er sextugur var staddur í fríi með eiginkonu sinni Zofiu á Karabísku eyjunni St. Barts þegar hann kenndi sér meins. Talsmaður leikarans segir að ekki hafi verið um hjartaáfall að ræða.

Meðal mynda sem Jean Reno hefur leikið í eru The Da Vinci Code, Ronin, Mission Impossible og síðast en ekki síst Leon frá árinu 1994 þar sem hann lék leigumorðingja á móti Natalie Portman.

Þess ber að geta að brjóstsviði og meltingartruflanir voru að hrjá Reno og taldi talsmaður hans það stafa af ófáti á krydduðum mat í Karíbahafinu.

Það er sem ég segi það er margt skrítið í henni veröld.

Þess má geta að konan sem er með honum á myndinni er konan hans hún Zofia

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066