| Jóhannes búinn að fá nýtt hjarta |
| Miðvikudagur, 02. September 2009 12:02 |
|
„Það var hringt í okkur um fjögurleytið á mánudaginn og við vorum komin í loftið um hálfsexleytið. Jóhannes fór beint í aðgerðina þegar við komum til Gautaborgar eða um miðnætti að íslenskum tíma,“ segir Halldóra. Að sögn Halldóru var Jóhannes kominn á gjörgæsludeild tólf klukkustundum eftir aðgerðina. „Hann var tekinn úr öndunarvél á miðnætti í nótt og vaknaði svo sjálfur síðar í nótt. Honum líður mjög vel og trúir því varla að þetta sé búið. Hann brosir bara hringinn. Hann er svo glaður. “ Halldóra hitti eiginmann sinn fyrr í morgun. „Læknarnir eru ánægðir með hversu vel aðgerðin tókst. Núna er Jóhannes að hvíla sig.“
Jóhannes fékk alvarlegt hjartaáfall í byrjun júní. Til þess að bjarga lífi hans var flogið með hann til Gautaborgar þar sem grædd var í hann hjartapumpa til þess að halda hjarta hans gangandi. |
