| Jóhannes kominn heim eftir hjartaígræðslu í Svíþjóð |
| Miðvikudagur, 07. Október 2009 20:02 |
|
Hann gekkst undir hjartaígræðslu í Svíþjóð í septemberbyrjun. Kom að utan sl. föstudag og hefur síðan verið undir eftirliti lækna á Landspítalanum og mun, ef allt gengur eftir, útskrifast í dag.
Jóhannes fékk kransæðastíflu fyrir um tíu árum og hefur síðan glímt við afleiðingarnar. Hann fékk áfall í byrjun júní og til að halda hjartanu gangandi var flogið með hann til Gautaborgar þar sem grædd var í hann hjartapumpa. Í lok ágúst fór hann með örstuttum fyrirvara aftur til Gautaborgar þar sem nýtt hjarta var grætt í hann. „Þegar ég vaknaði var ég ísettur slöngum um allan líkamann. Ég spurði hverju þetta sætti og hvort ég færi ekki að komast á skurðarborð. Þá var mér sagt að aðgerðinni væri lokið, nýja hjartað væri komið í mig og allt hefði tekist vel. Meira fann ég nú ekki fyrir þessu.“
Svo vel tókst aðgerðin að strax daginn eftir hafði Jóhannes mátt til að stíga í fætur og á fjórða degi náði hann að ganga 150 metra. Í framhaldinu jókst máttur og þol dag frá degi. Jóhannes lýkur lofsorði á hvernig staðið var að málum á Sahlgrenska, rétt eins og Landspítala. Þar hefst endurhæfing á næstu dögum og í framhaldinu fer Jóhannes á Reykjalund. Morgunblaðið 06.10.2009 |
