facebook

Jólakortasala Hjartaheilla
Föstudagur, 09. Nóvember 2007 11:14
Multithumb found errors on this page:

There was a problem loading image /u03/usrhome/hjartali/public_html/images/stories/jolakort1.jpg

jolakort1.jpgJólakortasalan er hafinn hjá Hjartaheill, landssamtökum hjartasjúklinga. Félagsmenn og aðrir velunnarar samtakanna eru beðnir um að taka vel á móti sölufólkinu.

Hjartaheill hefur um árabil verið með jólakortasölu fyrir jólin til tekjuöflunar. Jólakortin eru með ólíkum myndum frá ári til árs og eru tíu kort í pakka með myndum eftir listakonuna Gunnellu. Þetta er þriðja árið í röð sem Gunnella gefur samtökunum afnotarétt af listaverkum sínum til þessarar notkunar. Jólakortin í fyrra seldust vel og er greinilegt að verk Gunnellu falla landsmönnum vel í geð. Að þessu sinni er boðið upp á tvær myndir eftir listakonuna. Þær eru úr sömu seríu og fyrir síðustu jól. Þær heita Skautað í kringum snjókall og Sleðaferð.

Jólakortin fást á skrifstofu Hjartaheilla að Síðumúla 6, Reykjavík, hjá aðildarfélögunum úti á landi og í verslunum Hagkaupa. Einnig er hægt að hringja í síma 552 5744 og panta kort eða senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Pakkinn með 10 kortum kostar 1.000,- kr.

Jólakortasala Hjartaheilla hefur verið helsta fjáröflunarleið samtakanna til þessa. Landsmenn hafa ávallt tekið þessari fjáröflun vel og vonum við að svo verði einnig fyrir þessi jól.

www.hjartaheill.is 09.11.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066