| Kaffi, kynlíf og snýtur hættuleg heilsunni |
| Föstudagur, 06. Maí 2011 00:00 |
|
Náði rannsóknin til 250 sjúklinga yfir þriggja ára tímabil og fundust átta áhættuþættir sem voru tengdir við heilablæðingar. Voru þessar þrír á meðal þeirra. Heilablæðing getur átt sér stað þegar skemmd æð í heila springur. Afleiðingin getur verið heilaskaði eða dauði. Komust læknarnir að því að kaffi væri sökudólgurinn í einu af hverjum tíu tilfellum þegar æð í heila springur. Var kaffi algengasti áhættuþátturinn. Breska ríkisútvarpið BBC segir frá þessu á vefsíðu sinni. „Allir orsakavaldarnir ollu skyndilegu skammvinnri hækkun á blóðþrýstingi en það virðist möguleg sameiginleg ástæða fyrir að æðar springa í heila,“ segir Dr. Monique Vlak, taugasérfræðingur og aðalhöfundur rannsóknarinnar. |
