facebook

Kinnear í hjáveituaðgerð
Miðvikudagur, 11. Febrúar 2009 11:40

joe_kinnear.jpgJoe Kinnear mun á næstu dögum gangast undir hjáveituaðgerð á hjarta samkvæmt heimildum fréttastofu BBC.

Kinnear fékk hjartaáfall fyrir tíu árum síðan og veiktist fyrir leik Newcastle og West Brom á laugardaginn. Kinnear er knattspyrnustjóri Newcastle.

Kinnear var knattspyrnustjóri Wimbledon þegar hann fékk hjartaáfallið og tók sér í kjölfarið frí frá knattspyrnu í nokkur ár.

Fyrst um sinn leit út fyrir að Kinnear yrði fljótur að jafna sig og að hann yrði mættur aftur til starfa síðar í mánuðinum. Samkvæmt þessu er hins vegar ljóst að hann snýr ekki aftur til starfa á þessu tímabili.

Chris Hughton, aðstoðarmaður Kinnear, hefur stýrt Newcastle síðan Kinnear veiktist og mun halda áfram að gera slíkt hið sama þar til annað kemur í ljóst.

Fyrr í mánuðinum greindi Kinnear frá því að honum stæði til boða tveggja ára samningur við Newcastle en hann sagði þá ekki ætla að skoða hann fyrr en í lok tímabilsins, þegar núverandi samningur hans rennur út.


www.visir.is 11.02.2009

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066