| Klifu 900 m til bjargar hjartveikum |
| Þriðjudagur, 11. September 2007 21:50 |
|
Björgunarsveitarmennirnir náðu tindinum í þann mund sem þyrla Landhelgisgæslunnar bar að. Hún flutti manninn á sjúkrahús í Reykjavík. Hann var með meðvitund. Allt að þrjátíu björgunarsveitarmenn frá Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði tóku þátt í aðgerðinni, segir Baldur Pálsson, í svæðisstjórn björgunarsveita á Austurlandi.
|
