facebook

Klínískar leiðbeiningar um móttöku sjúklinga með brjóstverk
Fimmtudagur, 22. Janúar 2009 10:17

lsh_mynd1.jpgLandspítalinn hefur gefið út endurskoðaðar klínískar leiðbeiningar um upphafsmat og meðferð sjúklinga með brjóstverk. Ég hvet fólk til að skoða þetta því þetta er áhugavert efni.
Ég tala oft um að það skipti máli að vera upplýstur sjúklingur og geta haft skoðun á því hvað er verið að gera við mann. Það er kannski ekki síður áhugavert að kynna sér efnið til að fá innsýn inn í það sem gerist inni á bráðamóttöku í tilfellum sem þessum, hvert er raunverulega ferlið.
Höfundar leiðbeninganna eru læknarnir Davíð O. Arnar og Ragnar Danielsen.  Leiðbeiningarnar eru birtar sem drög.  Samvkæmt vef Landspítalans þurfa athugasemdir að berast til Davíðs Arnar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  í síðasta lagi 2. febrúar 2009.

Klínískar leiðbeiningar um greiningu og meðferð sjúklinga með brjóstverk

Klínískar leiðbeiningar um móttöku sjúklinga með brjóstverk - skema 

www.landspitali.is 21.01.2009 

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066