facebook

Kólnandi veður eykur líkur á hjartaáfalli
Fimmtudagur, 12. Ágúst 2010 00:00
fadmlag_veturbSamkvæmt nýrri breskri rannsókn, sem birtist í læknatímaritinu British Medical Journal síðastliðinn þriðjudag, hefur veðráttan áhrif á líkindi þess að fá hjartaáfall.

Rannsóknin, sem náði til 84 þúsund Breta sem lagðir voru inn á spítala vegna hjartaáfalls á árunum 2003 og 2006, leiddi í ljós að þegar hitastig lækkar um 1 gráðu á celsíus aukast líkurnar á að fá hjartaáfall, í sömu viku og lækkunin átti sér stað, um 2 uppsöfnuð prósentustig.

„Tvö prósent er ekki há prósentutala, en allir verða fyrir áhrifum af breyttu veðurfari og hjartaáföll eru algeng. Þessi tvö prósent samsvara allt að því tveim hundruðum manns,“ segir einn af höfundum rannsóknarinnar, Krishnan Bhaskaran. „Eldra fólk og þeir sem eru veilir fyrir hjarta eru sérstaklega viðkvæmir fyrir kólnandi veðurfari.“

Bhaskaran bætti við að fyrri rannsóknir hafi sýnt að blóðþrýstingur hækkar þegar kólnar í veðri. Þannig þykknar blóðið og hjartað þarf að hamast meira en ella. Það gæti verið skýringin á niðurstöðum nýju rannsóknarinnar.

„Við getum ekki stjórnað veðrinu en við getum stjórnað því hversu miklum áhrifum við verðum fyrir. Fólk ætti að nota almenna skynsemi til að verja sig fyrir kuldanum. Til að mynda klæða sig vel fyrir utan hússins dyr og passa upp á að hitinn innandyra sé réttur. Þá er ráðlegt að vera ekki mikið úti þegar kalt er í veðri.“

Rannsóknin var leiðrétt fyrir áhrifum á borð við loftmengun, sjúkrasögur sjúklinga og langtíma veðurbreytingar.

Morgunblaðið 12.08.2010

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066