| Konur fræddust um hjörtu á konudaginn |
| Mánudagur, 22. Febrúar 2010 00:00 |
|
GoRed átakinu er ætlað að gera konur meðvitaðri um hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum og í Háskóla Íslands sóttu yfir 400 konur GoRed hátíðina og hlýddu á erindi Axels F. Sigurðssonar, hjartalæknis, og Vilborgar Sigurðardóttur, hjartalæknis og formanns GoRed á Íslandi. Þar komu fram nokkuð sláandi tölur um háa dánartíðni kvenna í Evrópu af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Nær jafnmargir karlar og konur deyja af völdum kransæðastíflu, en mun fleiri konur, eða 17%, deyja vegna heilablóðfalls. 11% karla deyja af sama sjúkdómi. Í máli Axels kom fram að þótt hjarta- og æðasjúkdómar séu algengari hjá körlum en konum í yngri aldursflokkum, snýst dæmið við á efri árum. Konur þurfa því að huga betur að forvörnum og heilbrigðum lífsstíl. Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum, eru reykingar, sykursýki, blóðfituröskun, ofþyngd, kyrrsetulíf og streita.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
