facebook

Kreppan góð heilsunni
Föstudagur, 05. September 2008 10:46
skurdadgerd2.jpgANDSTÆTT því sem flestir myndu áætla virðist samdráttur í efnahagslífinu geta haft góð áhrif á heilsufar þjóða. Það er vissulega þekkt að óstöðugur efnahagur elur af sér streitu sem getur haft ýmsa líkamlega fylgikvilla. Hins vegar sýnir rannsókn sem nýlega var gerð í Bandaríkjunum og 23 aðildarríkjum OECD að dánartíðni af völdum hjartasjúkdóma er lægri á krepputímum. Sama á reyndar við um umferðar- og vinnuslys. Vísindamennirnir að baki rannsókninni skýra þetta svo að með verri fjárhag dragi fólk úr drykkju, reykingum og ofáti og stundi almennt heilbrigðara líferni þegar harðnar í ári. Fátt er því svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott.

Morgunblaðið 04.09.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066