facebook

Kúla skorin úr hjarta, 39 árum seinna
Laugardagur, 17. Mars 2007 00:00
byssukula.jpgLe Dinh Hung, sextugur uppgjafahermaður frá Víetnam, er laus við brjóstsviða, og önnur óþægindi, eftir að hafa lagst undir skurðhnífinn í Hanoi á dögunum. Þá fjarlægði skurðlæknir 2,5 sentímetra langa byssukúlu sem Hung hafði borið í hjarta sér í 39 ár.
Hung særðist í átökum við bandaríska hermenn í Suður-Víetnam 1968. Kúlan fór gegnum magann, skemmdi hjartaloku og nam staðar aftast í hjartanu. Læknirinn sem skar Hung upp segist aldrei hafa séð neitt svipað þessu, alla jafna deyi menn samstundis séu þeir skotnir í hjartað.

Myndirnar af byssukúlunum tengjast fréttinni ekki.

ruv.is.17.04.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066