| Kveður landlæknisembættið með söknuði |
| Þriðjudagur, 09. September 2008 22:04 |
|
Að sögn Sigurðar gefur nýja fyrirkomulagið á heilbrigðisvísindasviði kleift að efla samstarf á milli deilda innan heilbrigðisvísindanna. Auk þess gefist ný tækifæri til samvinnu við erlenda skóla og erlenda fræðimenn. „Ég kveð gamla starfið með mjög miklum söknuði. Ég hef nú samt verið svolítið upptekinn af því að menn eigi nú ekki að vera of lengi að störfum. Ég er búinn að vera í þessu í tíu ár og það fer að koma að því að ráðningartíminn renni út í vetur," segir Sigurður. Hann gerir ráð fyrir að láta af störfum landlæknis fyrir 1. nóvember. www.visir.is 09.09.2008 |
