| Kynmök tvisvar sinnum í viku minnka líkur á hjartaáfalli um helming |
| Sunnudagur, 10. Janúar 2010 09:35 |
|
Sambærileg rannsókn hefur ekki verið gerð á konum. Lengi hefur verið talið að kynlíf hafi góð áhrif á heilsu manna en hingað til hafa vísindalegar rannsóknir ekki sýnt fram á svo augljós áhrif. Talið er áhrif kynlífs á líkamsstarfsemina sem og tilfinningalegu áhrifin hafi þessi jákvæðu áhrif á heilsu hjartans. Ennfremur er álitið að þeir sem stunda kynlíf reglulega eigi í nánu tilfinningalegu sambandi sem hefur góð áhrif á hjartað. Talið er jafnframt að þeir karlmenn sem hafa sáðlát fimm sinnum í viku, annaðhvort í kynmökum eða með sjálfsfróun eigi síður á hættu að fá krabbamein í blöðruhálskirtli. |
