| Læknadeila enn í hnút |
| Laugardagur, 03. Apríl 2010 00:00 |
|
Stjórnendur Landspítalans líta svo á að ráðningarsamningur spítalans við almenna lækna sé enn í fullu gildi og því sé vinnustöðvun þeirra ólögmæt þvingunaraðgerð. Þessu vísar stjórn FAL á bug. Gunnar bendir á að félagsmönnum hafi um síðustu áramót verið gefinn kostur á að mótmæla nýju vaktaplani skriflega eða hlíta henni og halda áfram vinnu sinni. „Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna mótmælti bréflega og 1. apríl var því hefðbundinn uppsagnarfrestur liðinn,“ segir Gunnar og bendir á að túlkun FAL sé studd af lögfræðingi Læknafélags Íslands. Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segist fylgjast með deilunni og vonast eftir að hún leysist sem fyrst. „Ég hef fregnir af því að menn séu að tala saman undir forystu formanns læknaráðs spítalans þannig að það hlýtur að vera góðs viti,“ segir Álfhildur og tekur fram að aðalatriðið við núverandi aðstæður sé að öryggi sjúklinga sé tryggt og allar vaktir mannaðar. Ekki náðist í Þorbjörn Jónsson, formann læknaráðs Landspítalans, við vinnslu fréttarinnar í gærkvöldi, en hann er sáttasemjari í deilunni.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
