| Læknar berjast gegn transfitusýrum |
| Sunnudagur, 24. Október 2010 00:00 |
|
Í ályktun Læknafélagsins segir að neysla transfitusýra í matvælum auki tíðni hjarta- og æðasjúkdóma verulega. Í hertri fitu eins og smjörlíki geti verið mikið af transfitusýrum og tiltölulega lítil dagleg neysla geti aukið tíðni æðasjúkdóma um tugi prósenta. Sýnt hafi verið fram á að 5 grömm af hertri fitu á dag, auki líkur á hjarta- og æðasjúkdómum um 25%. Vísað er til þess að Danir hafi brugðist við þessum vanda með því að takmarka transfitusýrur í matvælum með lagasetningu árið 2003 og Sviss og Austurríki hafi gert það líka nýverið. Í Bandaríkjunum sé skylt að upplýsa um transfitusýruinnihald á umbúðum matvæla. Á Íslandi hafi rannsóknir bent til að tilbúin matvæli innihaldi mikið af transfitusýrum, eða allt að 35 grömm hverjum í 100 grömmum. Í Danmörku séu einungis 0,4 grömm í hverjum hundrað grömmum af samskonar mat. Umrædd þingsályktunartillaga gerir ráð fyrir að leyfilegt hámark af transfitusýrum í matvælum verði 2 grömm í hverjum hundrað. Læknafélagið segir mikilvægt að bregðast við þessum vanda hérlendis og að færa megi rök fyrir því að þetta sé með ódýrustu forvörnum í hjarta- og æðasjúkdómum sem unnt sé að grípa til.
|
