| Læknar úr neyðarbílum og inn á bráðadeild |
| Miðvikudagur, 12. Desember 2007 16:15 |
|
Í tilkynningunni segir enn fremur að breytingarnar séu gerðar með vitneskju og eftir atvikum samráði þeirra sem best þekkja til bráðaþjónustu innan og utan stofnana, landlækni, Sjúkraflutningaskólans, SHS og sérfræðinga spítalans. Tugir þúsunda leiti árlega til bráðamóttökunnar og er von slysa- og bráðasviðs Landspítala sú að með þessu móti verði unnt að koma betur til móts við þarfir þeirra. Áhersla á samskipti bráðatækna og lækna á sjúkrahúsi „Störf lækna sem koma á slysa- og bráðasviðið til framhaldsnáms og þjálfunar eru bráðaþjónustunni innan Landspítala afar mikilvæg. Fjarvera þeirra vegna reglulegra vakta á sjúkrabílum hefur óneitanlega valdið auknu álagi á annað starfsfólk í bráðaþjónustu spítalans en þeim fjölgar sífellt sem þurfa á þjónustunni að halda," segir enn fremur í tilkynningu Landspítalans og SHS. Bent er á að bráðtæknar slökkviliðsins séu menntaðir í Bandaríkjunum þar sem hefð er fyrir því að bráðatæknar annist bráðaþjónustu utan stofnana. Mikil áhersla sé hins vegar lögð á samskipti þeirra og sérfræðinga á slysadeild á meðan verið er að koma sjúklingi undir læknishendur og hyggjast Landspítali og SHS styrkja þann þátt í samstarfi sínu.
Enn fremur verður samstarf þessara aðila um gæðaeftirlit og símenntun sjúkraflutningamanna eflt enn frekar. Þátttaka í störfum á vettvangi við hlið sjúkraflutningamanna verður eftir sem áður hluti af þjálfun lækna í framhaldsnámi í bráðalækningum. |
